Naglaskólinn
ProNails naglaskólinn hefur boðið upp á faglega kennslu í naglafræði á Íslandi í yfir þrjá áratugi. Markmið okkar er að veita nemendum traustan grunn, fagleg vinnubrögð og þá þekkingu sem þarf til að hefja störf í faginu.
Kennsla fer fram í litlum hópum þar sem lögð er áhersla á persónulega leiðsögn og verklega þjálfun. Kennarar skólans hafa hlotið kennararéttindi frá höfuðstöðvum ProNails í Belgíu og starfa eftir sömu faglegu viðmiðum og kennd eru innan ProNails kerfisins.
Í dag er ProNails naglaskólinn starfræktur á þremur stöðum á landinu; á Akureyri, Akranesi og í Reykjanesbæ.
PRONAILS NAGLASKÓLINN
Akureyri
Naglaskóli ProNails er eini naglaskólinn staðsettur á Akureyri.
Kennari er Hafrún Helga eigandi sjúkranudd og neglur ehf. , hún hefur unnið með ProNails vörurnar síðan hún lærði naglafræði hjá ProNails árið 2010.
Hún fékk kennararéttindi eftir kennaranámskeið í höfuðstöðvum ProNails í Belgíu Mars 2023.
PRONAILS NAGLASKÓLINN
Akranesi
Naglaskólinn á Akranesi hefur verið starfrækur í 5 ár og er í eigu Steinunnar. Steinunn er naglafræðingur með kennsluréttindi frá ProNails og Snyrtifræðimeistari.
PRONAILS NAGLASKÓLINN
Reykjanesbæ
ProNails Naglaskólinn í Reykjanesbæ er nýjasta viðbótin hjá okkur. Svanlaug eigandi naglaskólans er naglafræðingur með kennsluréttindi frá ProNails, snyrtifræðimeistari og hársnyrtimeistari.