Collection: Sopolish System
Sopolish er einstakt kerfi sem veitir fullkomlega fallegar og endingargóðar neglur í allt að 14–21 dag. Varan er borin á eins og hefðbundið naglalakk, harðnar hratt í LED lampa og er auðveld í fjarlægingu með annað hvort Soak Off eða Peel Off aðferð, án þess að skemma náttúrulegu nöglina.
Engin þörf er á grófri þjölnun, borun eða óþarfa álagi á nöglina. Sopolish er þróað með virðingu fyrir náttúrulegu nöglinni og býður upp á örugga, fallega og endingargóða lausn fyrir viðskiptavini sem vilja fullkomnar neglur dag eftir dag.
Hvað er Sopolish?
• Hálfvaranlegt gel lakk // Semipermanent
• Einstaklega auðvelt í ásetningu
• Harðnar hratt í LED lampa
• Fjarlægt með Soak Off eða Peel Off aðferð
Af hverju velja snyrtifræðingar Sopolish?
Sopolish sameinar einfaldleika naglalakks og endingu gelkerfis. Varan er auðveld í notkun, gefur fallega og jafna áferð og endist í að minnsta kosti 14 daga án þess að skaða náttúrulegu nöglina.
Sopolish er fáanlegt í yfir 140 litum, allt frá klassískum og tímalausum tónum yfir í nýjustu trend liti hverrar árstíðar.
-
Þessi vöruflokkur er eingöngu ætlaður fagfólki.
Til að fá aðgang að heildsölu:
• skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang
• sendu okkur staðfestingu á réttindum með tölvupósti eða í skilaboðum á samfélagsmiðlum ProNails Ísland
Við opnum fyrir heildsöluaðgang um leið og réttindi hafa verið staðfest 💌